Okkar ferðir logo

Sölden 20. - 27. desember 2025

Það er gaman að halda jólin í Sölden.
Síðast komust færri að en vildu.

Ferðir okkar til Sölden hafa heppnast einstaklega vel og umsagnir gesta okkar verið frábærar. Hótelið, maturinn, skíðabrekkurnar, fararstjórnin, þjónustan allt fær þetta hæstu einkunn sem gerir okkur stolta af því að bjóða upp á þessar ferðir.

Ferðaskipulag

  • Laugardagur 20. desember - laugardagsins 27. desember 2025
  • Flogið með Icelandair til Innsbruck.
  • Farastjóri Okkar Ferða mun á flestum dögum setja upp skíða plan þar sem brekkur og lyftur er settar saman í eina heild fyrir daginn þannig að sem mest fáist út úr deginum.

Til að tryggja sér sæti í ferðina þarf að greiða staðfestingargjald kr. 45.000 á farþega.
Ef eitthvað kemur uppá í bókunarferlinu vinsamlegast sendið tölvupóst á info@okkarferdir.is

Eingöngu er boðið upp á gistingu á hótel Bäckelarwirt með morgunmat og kvöldmat.

Sérstakur 7 rétta hátíðarkvöldverður er þann 24. desember og er hann einnig innifalinn.


Verðlisti

Flug, gisting og hálft fæði

  • Superior double room verð kr. 397.000 á mann.
  • Extra bed barn 3-6 ára kr. 264.000 á mann.
  • Extra bed barn 7-12 ára kr. 323.000 á mann.
  • Extra bed barn 13+ ára kr. 347.000 á mann.
  • Single room verð kr. 420.000 á mann.
  • Family Room verð kr. 408.000 á mann.
  • Nánar um hótel Backelarwirt.

Innifalið í verði:
Íslensk fararstjórn.
Flug til og frá Innsbruck með Icelandair.
23 kg taska og 10kg handfarangur.
Aðgengi að fararstjóra alla ferðina.
Aðstoð við kaup á lyftu kortum.
Aðstoð við leigu á búnaði.
Aðstoð við að finna kennslu við hæfi.
Akstur til og frá flugvelli.
Öll almenn aðstoð.

Ekki innifalið í verði:
Fluginnritunargjald fyrir skíðabúnað.
Lyftukort.
Hádegismatur.
Gistináttagjald.

Sölden í allri sinni dýrð